Translate to

Fréttir

Kjörfundur vegna kjarasamninga sjómanna

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur staðið fyrir tveimur kynningarfundum um kjarasaminga sjómanna á Vestfjörðum og hafa fundarmenn getað kosið um samninginn að loknum kynningum. Í þessu sambandi er rétt að ítreka að kjörfundur er einnig í dag 29.desember til kl 17:00 og á morgun 30. desember frá kl.08:00 - 17:00 í skrifstofu félagsins á Ísafirði. Sjómenn eru hvattir til að mæta og greiða atkvæði um samninginn. Einnig er hægt að greiða atkvæði um samninginn hjá Halldóri Gunnarssyni deildarformanni á Patreksfirði.  Áformað er að tilkynna úrslit í atkvæðagreiðslunni á gamlársdag.
Deila