Translate to

Fréttir

"Komum í veg fyrir nýja öld lénsherra á Íslandi"

Staða atvinnumála á Flateyri og Þingeyri var til umræðu á fundi trúnaðarráðs félagsins sem haldinn var á Hótel Ísafiði í gærkvöldi. Voru fundarmenn ómyrkir í máli þegar staða sjávarbyggða var rædd. Flutningur veiðiheimilda, hreppaflutningar starfsfólks og nútíma vistarbönd voru orð sem féllu á fundinum. Skeytingarleysi gagnvart landverkafólki og minkandi atvinnuöryggi er grafalvarlegt mál og furðulegt að ekki skuli vera gripið til markvissra leiða til að koma í veg fyrir flutning aflaheimilda. Samfélagslegri ábyrgð er kastað fyrir róða og skammtíma gróðasjónarmið látin ráða.  Eftir nokkrar umræður um þá alvarlegu stöðu sem komin er upp í sjávarbyggðum Vestfjarða samþykkti trúnaðarráðið að senda frá sér eftirfarandi ályktun:

„Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir stjórnvöld ábyrg fyrir þeim áföllum sem dunið hafa yfir störf í sjávarútvegi undanfarin misseri. Landverkafólk hefur ekkert til saka unnið sem réttlætir að vera sett í nútíma vistarbönd kvótaeiganda.

Kvótaflutningar í bolfiski er birtingarmynd hins frjálsa framsals aflaheimilda sem heggur enn á ný svo nærri vestfirskum byggðum að ekki verður við unað. Nýjustu dæmin eru boðaðar breytingar á bolfiskvinnsu á Flateyri og flutningur veiðiheimilda frá Þingeyri með lokun starfsstöðvar Vísis hf. Fundurinn krefst þess að strax verði gerðar viðeigandi ráðstafanir til að Vestfirðingar geti betur nýtt gjöful fiskimið fjórðungsins með réttmætum hætti.

Fundurinn krefst áræðni og staðfestu í ákvarðanatöku svo tryggja megi að hjól atvinnulífs á Vestfjörðum stöðvist ekki. Komum í veg fyrir nýja öld lénsherra á Íslandi með tilheyrandi stéttaskiptingu. Ráðumst gegn atvinnu- og tekjumissi í Vestfirskum sjávarbyggðum með samstöðu okkar allra að vopni.“

Deila