Translate to

Fréttir

Kynningarfundir vegna kjarasamninga sjómanna

Samningurinn gildir fyrir sjómenn í Verk Vest Samningurinn gildir fyrir sjómenn í Verk Vest

 

 SJÓMENN ATHUGIÐ !

 

Verkalýðsfélag Vestfirðinga verður með kynningarfundi um kjarasamning sjómanna mánudaginn 22.desember og mánudaginn 29.desember.  Kynningarfundurinn 22.desember hefst kl.13:30 í húsi félagsins á Ísafirði. Kosning um kjarasamninginn verður að lokinn kynningu.

  

Kynningarfundurinn 29.desember hefst kl. 13:30 í húsnæði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Ísafirði. Sjómenn á sunnanverðum Vestfjörðum eru hvattir til að mæta í þekkingarsetrið Skor á Patreksfirði, en notast verður við fjarfundarbúnað við kynninguna. Kosning fer fram á Ísafirði og Patreksfirði að lokinni kynningu.

 

Upplýsingar um kjarasamninginn má finna á hér á síðunni.

 

Deila