Translate to

Fréttir

Laun hækka þann 1. maí

Þann 1. maí næst­kom­andi hækka laun al­mennt um 3% sam­kvæmt kjara­samn­ing­um Verk Vest á aðild að. Lág­marks­tekjutrygging fyrir dagvinnulaun hækkar meira eða sem nem­ur 7% og verður lág­marks­tekju­trygg­ing fyr­ir 100% starf 300 þúsund krón­ur á mánuði.

Félagsmenn Verk Vest eru hvattir til að fylgjast sérstaklega með hvort laun fyrir dagvinnu, bónusar og álagsgreiðslur þar með taldar, lendi undir 300 þúsund. Atvinnurekanda ber að bæt starfsfólki í fullu starfi sem EKKI nær 300 þúsund fyrir dagvinnu það sem upp á vantar.

Rétt er að minna á að 1. júlí næst­kom­andi hækkar mót­fram­lag at­vinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði á samn­ings­sviði SA og aðild­ar­fé­laga ASÍ úr 10,0% í 11,5%.

Nýjar kaupgjaldsskrár hafa verið uppfærðar á og eru aðgengi­legar á vef Verk Vest.

Deila