Translate to

Fréttir

Launakröfur SGS lagðar fyrir Samtök atvinnulífsins

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) lagði fyrr í dag fram launakröfur fyrir komandi kjarasamninga til Samtaka atvinnulífsins. SGS hefur umboð 16 aðildarfélaga sinna til að ganga til samninga fyrir þeirra hönd og hefur þar með umboð til kjarasamningsgerðar fyrir almennt og sérhæft verkafólk á öllu landinu að undanskildum þeim félögum sem eru innan vébanda Flóabandalagsins.

Í kröfugerð SGS er lögð áhersla á að endurskoða launatöflu þannig að jafnt bil verði milli launaflokka og launaþrepa. Í nýrri launatöflu er lögð áhersla á að bætt verði við nýju 10 ára starfsaldursþrepi ásamt því að öll starfsaldursþrep miðist við starfsgrein en ekki starfsaldur hjá sama fyrirtæki eins og nú er reyndin. Gerð er krafa um að lægsti taxti í launatöflu hækki um 20.000 krónur á samningstímanum og aðrir launaflokkar taki breytingum miðað við endurskoðun töflunnar.


Markmiðið með þessum kröfum er að hækka þá lægst launuðu umfram aðra og tekið verði sérstakt tillit til fólks sem hefur starfað lengi innan sömu starfsgreinar. Þá gerir samninganefnd SGS þá kröfu að desember- og orlofsuppbætur hækki í átt að því sem samið hefur verið um á hinum opinbera vinnumarkaði.

Í undirbúningi kjarasamninga hefur SGS beint sjónum að starfsfólki í fiskvinnslu og ferðaþjónustu í ljósi mjög sterkrar stöðu útflutningsgreina um þessar mundir. Helstu kröfur í fiskvinnslu verði endurröðun í launaflokka auk breyting ákvæða um lágmarksbónus.


Gera þarf stórátak hjá starfsfólki í ferðaþjónustu með því að lyfta henni á sambærilegt plan og aðrar atvinnugreinar. Megináhersla er lögð á að endurskipuleggja starfsheiti með það að markmiðið að reynsla, þekking og menntun endurspeglist í nýrri launatöflu. Þá verði umhverfi vaktavinnufólks endurskipulagt til samræmis við aðrar stéttir.

Kröfugerð SGS er afrakstur umfangsmikillar vinnu innan hvers aðildarfélags þar sem þúsundir félaga hafa tekið þátt. Þá hefur samninganefnd SGS, sem samanstendur af formönnum þeirra 16 aðildarfélaga sem veitt hafa SGS umboð, samþykkt lokakröfugerð.

Deila