Translate to

Fréttir

Lífsleikni hjá Grunnskóla Ísafjarðar

Fanney Pálsdóttir ráðgjafi Virk segir frá starfsemi sjóðsins Fanney Pálsdóttir ráðgjafi Virk segir frá starfsemi sjóðsins
Hluti lífsleiknihópsins eftir heimsóknina Hluti lífsleiknihópsins eftir heimsóknina
Tekið hefur verð upp á þeirri nýbreytni við kennslu í Lífsleikni við Grunnskóla Ísafjarðar að kynna nemendum atvinnulífið á Ísafirði. Einn liður í þeirri kennslu var að fræðast um starfsemi Verk Vest og mætti flottur hópur af nemendum í 9 bekk á skrifstofu félagsins þar sem formaður Verk Vest tók á móti hópnum og fræddi um starfsemina. Var einnig farið stuttlega yfir uppbyggingu stéttarfélaga og kjarasamninga ásamt því að ráðgjafi stéttarfélaganna hjá Virk á Vestfjörðum sagði frá sínu starfi. Þessi flotti hópur var mjög áhugasamur og spurði um margt sem tengdist kjarasamningum og kom það formanni á óvart hvað þau virtust vel með á hvaða starf færi fram hjá Verk Vest. Félagið fagnar þessari nýbreytni í skólastarfinu og vonast til að framhald verði á, en þess má geta að gott samstarf hefur verið við Vinnuskólana á svæðinu um fræðslu til vinnuskólakrakka er varðar þessa samfélagsfræðslu.
Deila