Translate to

Fréttir

Mál skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS-270 komið í viðeigandi ferli

Stéttarfélög skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 hafa sent kröfu til Héraðsdóms Vestfjarða að fram fari sjópróf vegna hópsmits um borð í togaranum og jafnframt sent lögreglustjóranum á Vestfjörðum kæru þar sem útgerð og fyrirsvarsmenn hennar eru kærð til lögreglu vegna mögulegra brota á sjómannalögum, sóttvarnarlögum og almennum hegningarlögum. Stéttarfélögin ítreka að nauðsynlegt er að rannsaka málið í kjölinn og draga þá til ábyrgðar sem stóðu að ákvörðunum í málinu. Stéttarfélögin telja nú sem aldrei fyrr nauðsynlegt að standa saman og tryggja að atvik sem þessi geti ekki endurtekið sig og að ljóst sé að útgerðarfélög geti ekki komist upp með að stefna starfsmönnum sínum í slíka hættu.

Meðfylgjandi er sjóprófsbeiðni og lögreglukæra.

Félag skipstjórnarmanna

Sjómannafélag Íslands

Sjómannasamband Íslands

Verkalýðsfélag Vestfirðinga

VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna

Deila