Translate to

Fréttir

Mikill verðunur á fiski, 50 - 100% verðmunur algengur

Fiskbúðin Sjávarfang Ísafirði. Mynd: BB.IS Fiskbúðin Sjávarfang Ísafirði. Mynd: BB.IS

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 27 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið mánudaginn 2. júní. Kannað var verð á 23 algengum tegundum fiskafurða. Í um helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði á milli 50-100%. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.

Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi Hafnarfirði eða í 10 tilvikum af 23, Fiskbúð Siglufjarðar var næst oftast með lægsta verðið eða í fjórum tilvikum af 23 og Fiskbúðin Fiskás Hellu og Fiskbúðin Trönuhrauni í þremur tilvikum. Meiri dreifing var á hæsta verðinu á milli verslana, en hæsta verðið var hjá Hafberg Gnoðavogi í sjö tilvikum af 23, hjá Fiskikónginum Sogavegi í fimm tilvikum og hjá Fiskbúðinni Vegamótum Seltjarnanesi í fjórum tilvikum. Aðeins Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði átti til allar tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni. Fæstar tegundirnar sem skoðaðar voru, voru til hjá Kjöt og fiskbúð Austurlands eða aðeins sex af 23 og Samkaup-Úrval Hafnarfirði átti til sjö tegundir. 

Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 25% upp í 123%. Mestur verðmunur í könnuninni var á stórlúðu í sneiðum sem var dýrust á 3.990 kr./kg. hjá Fiskikónginum, en ódýrust á 1.790 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Fiskás Hellu en það gerir 2.200 kr. verðmun eða 123%.

Minnstur verðmunur var á roðflettu og beinlausu ýsuflaki sem var ódýrast á 1.590 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Fiskás og Litlu Fiskbúðinni Hafnarfirði en dýrast á 1.990 kr./kg. hjá Hafberg, Fiskikónginum og Ship O Hoj Reykjanesbæ, en það gerir 400 kr. verðmun eða 25%.

Nánari upplýsingar um könnunina má finna á vef ASÍ.

Deila