Translate to

Fréttir

Nýjir kjarasamningar Verk Vest

Samninganefd SGS Samninganefd SGS
Formenn Verk Vest, Bárunnar og Vls. Bolungavíkur Formenn Verk Vest, Bárunnar og Vls. Bolungavíkur
Formaður SGS undirritar samning verkafólks Formaður SGS undirritar samning verkafólks
Komið að undirritun samninga Komið að undirritun samninga
Flóknustu samningar í áratugi ! Flóknustu samningar í áratugi !
Fjölmiðlanbanni aflétt Fjölmiðlanbanni aflétt
Samninganefnd SGS undirritar samninginn Samninganefnd SGS undirritar samninginn
Samningaviðræður í hverju horni Samningaviðræður í hverju horni
Í ráðherrabústaðnum Í ráðherrabústaðnum

Á ellefta tímanum í gærkvöldi voru undirritaðir nýjir kjarasamningar fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Kjarasamningar taka til allra almennra verkamannastarfa, hótel, veitinga- og ferðaþjonustustarfa, afgreiðslufólk í verslunum og skrifstofufólks. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 - 30. nóvember 2022 og gilda launahækkanir frá gildistöku samningsins.

Lægstu kauptaxtar hækka mest á samningstímanum eða um 90.000 kr. í fjórum hækkunum.

1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
1. apríl 2020 24.000 kr.
1. janúar 2021 23.000 kr.
1. janúar 2022 26.000 kr.

Almenn hækkun til þeirra sem eru ekki á taxtalaunum

1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
1. apríl 2020 18.000 kr.
1. janúar 2021 15.750 kr.
1. janúar 2022 17.250 kr.

Lágmarkstekjtrygging fyrir fullt starf
• 1. apríl 2019 317.000 kr. á mánuði
• 1. apríl 2020 335.000 kr.
• 1. janúar 2021 351.000 kr.
• 1. janúar 2022 368.000 kr

Desemberuppót (var 89.000 kr. 2018)
2019 92.000 kr.
2020 94.000 kr.
2021 96.000 kr.
2022 98.000 kr.

Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018)
• 1. maí 2019 50.000 kr.
• 1. maí 2020 51.000 kr.
• 1. maí 2021 52.000 kr.
• 1. maí 2022 53.000 kr.

Eingreiðslan kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót árið 2019 uppá 26.000 kr. sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019.

  • 2,5% hækkun á aðra liði kjarasamninganna eins og bónusa.
  • Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði.
  • Barnabætur hækka og fæðingarorlof lengist í 12 mánuði.
  • Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu breytingar í tæpa hálfa öld).
  • Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum.

Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinni þróun á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.
Tenging við hagvöxt (hagvaxtarauki) tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni. Þetta ákvæði nýtist best þeim tekjulægri þar sem þessi hækkun fer af fullum þunga á taxtakaup og ¾ á önnur laun. Hagvaxtarauki getur hækkað taxtalaun um 3-13 þúsund á ári eftir því hvað verg landsframleiðsla á mann hækkar mikið á tímabilinu.

Forsendur kjarasamninganna eru eftirfarandi:

1. Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
2. Vaxtir lækki verulega fram að endurskoðun samnings í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
3. Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna.

Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendurnefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila.

Deila