Translate to

Fréttir

Nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk Edduhótela

Starfsgreinasamband Íslands og Flugleiðahótel ehf. hafa undirritað nýjan kjarasamnings sem tekur til starfsfólks á Edduhótelum sem vinna eftir hlutaskiptakerfi. Samningurinn kemur til viðbótar kjarasamningi aðila frá 22. júní 2011 og tekur mið af breytingum sem gerðar voru á kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem undirritaðir voru 21. desember 2013 ásamt sáttatillögu ríkissáttasemjara frá 20. febrúar 2014. Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2014 til 28. febrúar 2015 og fellur hann þá úr gildi án sérstakrar uppsagnar.

Laun verða sem hér segir frá gildistöku samningsins þann 1. apríl 2014:

  Launafl. 5 Launafl. 6
Byrjunarlaun 18 ára 207.814 209.500
Eftir 1 ár 209.500 211.211
Eftir 3 ár 211.211 212.948
Eftir 5 ár 212.948 214.711
Eftir 7 ár 214.711 216.500
Önnur atriði samningsins, s.s. ákvæði um lágmarkstekjur, ráðningar, vinnufyrirkomulag og launaauka má nálgast hér.
Deila