Translate to

Fréttir

Opinn fundur Trúnaðarráðs og aðalfundur deilda

Alþýðuhúsið Ísafirði Alþýðuhúsið Ísafirði

Opinn fundur Trúnaðarráðs og aðalfundur deilda annarra en sjómannadeildar verður haldinn mánudaginn 16. janúar klukkan 18:00 í fundarsal Verk Vest í Alþýðuhúsinu á Ísafirði (efsta hæð í bíóinu).

Kosið verður í deildarstjórnir í eftirfarandi deildum:

  • Iðnaðardeild
  • Matvæla- og þjónustudeild
  • Opinber deild
  • Verslunar- og skrifstofudeild

Samkvæmt 4. gr. laga félagsins um skiptingu deilda og hlutverk skal kjósa þrjá aðalmenn og tvo varamenn í stjórn hverrar deildar, en deildirnar hafa með höndum sérmál sinna deilda og formenn deildarstjórna sitja einnig í félagsstjórn.

Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í störfum félagsins. Þeir félagsmenn sem óska eftir að vera í fjarfundi þurfa að skrá sig með amk dags fyrirvara með tölvupósti á bergvin@verkvest.is og gefa upp nafn, kennitölu, síma og netfang.

Við minnum á rafrænu félagsskírteinin sem má nálgast hér.

Deila