Translate to

Fréttir

Samtök atvinnulífsins setja SALEK samkomulag í uppnámi

Undanfarnar vikur hafa verið í gangi mjög harðar kjaraviðræður við Rio Tinto Alcan í Straumsvík og má segja að starfsmönnum sé haldið í gíslingu af fyrirtækinu með atbeina SA ( Samtök atvinnulífsins ). Fyrirtækið hefur hafnað að ræða við samninganefnd starfsmanna um sambærilegar launahækkanir og náðust á almennum vinnumarkaði fyrr á þessu ári. Með þessu má segja að SA sé að leggja þá línu að ætla ekki að vinna eftir svokölluðu SALEK samkomulagi. Vissulega setja slík vinnubrögð SA samkomulagið í uppnám og trúverðuleiki samtakanna gagnvart samkomulaginu verði að engu orðinn ef SA breytir ekki um takt í viðræðunum.  Í því ljósi sendi miðstjórn ASÍ frá sér eftirfarandi ályktun. 

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands krefst þess að Samtök atvinnulífsins beiti sér fyrir því að gengið verði hið fyrsta frá kjarasamningi á milli ISAL og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga. Síðustu mánuði hefur verið lögð mikil vinna í að móta nýtt íslenskt samningalíkan að norrænni fyrirmynd. Staðan sem upp er komin í Straumsvík og framganga SA í málinu er afleitt innlegg í það samkomulag sem aðilar á vinnumarkaði skrifuðu undir fyrir fáeinum dögum. Það er með miklum ólíkindum að SA skuli ganga erinda Rio Tinto og halda starfsmönnum eins fyrirtækis í gíslingu. Þannig er komið í veg fyrir að þeim verði boðin sama launahækkun og flestir launamenn á íslenskum vinnumarkaði hafa fengið.

ASÍ hvetur SA til að starfa í anda þess samkomulags sem undirritað var 27. október sl. og ganga frá kjarasamningi við starfsmenn álversins í Straumsvík. Að öðrum kosti er trúverðugleiki SA farinn fyrir lítið og samkomulag um ný og betri vinnubrögð á íslenskum vinnumarkaði komið í fullkomið uppnám.

 

Deila