Translate to

Fréttir

Sérkjarasamningur við innanlandsflug Icelandair samþykktur

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félaga LÍV í kosningu um nýgerðan kjarasamning við innanlandsflug Icelandair liggja nú fyrir.

Kjarasamningur LÍV við innanlandsflug Icelandair var samþykktur með 71,43% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 15 félagsfólk í félögum innan VR/LÍV og nei sögðu 5 eða 23,81%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 1 eða 4,76%. Á kjörskrá um samning VR/LÍV og innanlandsflug Icelandair var 51 félagsfólk í félögum innan VR/LÍV og greiddu 21 atkvæði, og var kjörsókn því 41,18%.

Deila