Translate to

Fréttir

Sjálfstyrking og innra starf tekið fyrir á námskeiði

Sundlaugin og hótelið í Reykjanesi Sundlaugin og hótelið í Reykjanesi

  

Verkalýðsfélag Vestfirðinga stendur fyrir námskeiði í sjálfstyrkingu þar sem Sigríður Arnardóttir "Sirrý" ætlar að laða fram betri hliðina á félagsmönnum Verk Vest. Þá er einnig ætlunin að fara í innra starf félagsins og hvaða áherslur félagsmenn vilja að settar verði í forgang á næstunni.

Námskeiðið verður dagana 27. - 28. mars nk. í Reykjanesi við Ísfajarðardjúp. Nánari upplýsingar og skráning fer fram á skrifstofu félagsins, síðasti skráningardagur er 20. mars nk. Þó svo að ætlunin sé að höfða fyrst og fremst til trúnaðarfólks og  þeirra sem hafa tekið virkan þátt í starfsemi félagsins þá er námskeiðið opið öllum félagsmönnum Verk Vest sem vilja láta til sín taka í félagsstarfinu.

Deila