Translate to

Fréttir

Sumarúthlutun orlofshúsa

Þann 15. mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús hjá Verk Vest sumarið 2021. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins og sótt um með því að velja: Sumar.

Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2021. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Einarsstaðir á héraði

Flókalundur í Vatnsfirði

Illugastaðir í Fnjóskadal

Svignaskarð í Borgarfirði

Ölfusborgir við Hveragerði

Orlofshúsin eru leigð í viku frá föstudegi til föstudags. Hægt er að sækja um eina viku með allt að fjórum valmöguleikum. Tímabilið hefst föstudaginn 14. maí og lýkur þann 10. september. Verð fyrir viku er 30.000.kr. Félagsmaður þarf að eiga að lágmarki 36 punkta til að geta sótt um.

Umsóknarfrestur rennur út 7. apríl 2021

Fyrsta úthlutun fer fram 8. apríl og munu allir þeir sem sóttu um fá senda niðurstöðu úthlutunarinnar í tölvupósti.

Félagið á einnig hlut í orlofshúsi á Spáni og er það leigt í tvær vikur í senn að sumrinu, frá mánudegi til mánudags. Í sumar auglýsa ferðaskrifstofurnar Heimsferðir, Vita og Úrval Útsýn vikuleg flug til Alicante með brottför og heimkomu á mánudögum. Sumarleiga á Spáni er óbreytt og er leiguverð fyrir tvær vikur er kr. 103.000 og er skilagjald innifalið í leiguverði. Ekki þarf að eiga punkta til að panta húsið. Hér er hægt að skoða laus tímabil á Spáni, en íbúðin en eingögnu bókanleg í gegnum Verk Vest í síma 456 5190.

Á orlofsvef félagsins er einnig hægt að kaupa, hin ýmsu kort og ferðaávísanir á gistiheimilum og hótelum víðs vegar um landið. Ferðaávísunin er inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá einhverjum af fjölmörgum samstarfsaðilum okkar. Við kaupin fær félagsmaður hlutfallslega niðurgreiðslu frá Verk Vest.

Deila