Translate to

Fréttir

Verk Vest minnir á 19. júní

Jafn réttur og jöfn tækifæri kvenna og karla til launa og starfa eru grundvallar­mannréttindi. Enn er nokkuð í land með að jafnrétti og jafnir möguleikar kynjanna verði að veruleika og því er mikilvægt að minnast sigurs eins og kosningaréttar kvenna 1915 til að brýna okkur áfram í jafnréttisbaráttu dagsins í dag. Til að bæta stöðu kvenna í samfélaginu og á vinnumarkaði er mikilvægt að þær hasli sér völl á sem flestum sviðum. Jafnframt er mikilvægt að afhjúpa og uppræta kynbundinn launamun á íslenskum vinnumarkaði. 

Verk Vest hvetur bæði konur og karla til þátttöku í dagskrá 19. júní.

Deila