Translate to

Fréttir

Viðræður við SA sigla í strand

Eftir samningafund fulltrúa landsambanda ASÍ fyrr í dag varð ljóst að ekki yrði komist lengra í viðræðum við Samtök atvinnulífsins á grundvelli þeirra vinnu sem grunnur hafði verið lagður að innan samninganefnda ASÍ. Í kjölfar þess var ákveðið að slíta viðræðum og sendu fulltrúar landsambanda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

"Samninganefnd ASÍ hefur á undanförnum vikum unnið að því að leggja grunn að aðfarasamningi við Samtök atvinnulífsins, þar sem þess yrði freistað að ná auknum kaupmætti, tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og lágri verðbólgu. Ágætur árangur hefur náðst um umgjörð slíks samnins. Í dag kom hins vegar í ljós djúpstæður ágreiningur við SA um launalið væntanlegs samnings, sérstaklega það sem snýr að hækkun lægstu launa. Svo langt er á milli aðila að samninganefnd ASÍ telur forsendur brostnar fyrir þeirri leið sem átti að varða. SA hafnar þeirri kröfu ASÍ að hækka lægstu laun um ákveðna krónutölu. Því hefur samninganefnd ASÍ tilkynnt SA að viðræðum á þessum grunni sé hætt. Framhald viðræðna um gerð nýrra kjarasamninga er á höndum aðildarsamtaka ASÍ."
Deila