Um áramót voru um 2.400 einstaklingar í þjónustu á vegum VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. 1.783 einstaklingar komu nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2014 og fjölgaði þeim um tæp 9% frá fyrra ári en þá leituðu 1639 einstaklingar til VIRK. 1.066 einstaklingar luku þjónustu 2014, um 18.5% fleiri en 2013 en þá útskrifuðust 899 einstaklingar. Alls hafa tæplega 3800 einstaklingar útskrifast frá VIRK frá upphafi og um 74% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift. Sjá nánar í frétt á virk.is.