Translate to

VIRK - endurhæfing

Auglýst eftir efni í ársrit VIRK 2017

Ársrit VIRK verður venju samkvæmt gefið út í apríl á næsta ári. Skýrsla framkvæmdastjóra og annar fróðleikur, frásagnir af starfsemi VIRK og viðtöl verða meðal efnis í ársritinu en auk þess verður sem fyrr boðið upp á fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í ársritinu.

Þeir sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og hafa hugmyndir að greinum og/eða umfjöllunarefnum eru beðnir um að hafa samband við ritstjóra, senda t.d. tölvupóst á eysteinn@virk.is eða joninuw@virk.is.

Deila