„Ég vil þakka VIRK fyrir þá góðu aðstoð sem ég fékk. Mitt álit er að starfsemin sem þar er rekin sé mjög uppbyggjandi fyrir þá sem lenda í erfiðum aðstæðum, eins og ég gerði. Ég hvet fólk eindregið til að nýta sér starfsemina hjá VIRK. Það er engin svikinn af aðstoð VIRK.“ segir Magnús Árni Gunnlaugsson sem varð óvinnufær eftir sjóslys, leitaði til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og náði góðum árangri í starfsendurhæfingu sinni. Sjá nánar á virk.is