Í verkefninu Virkur vinnustaður sem lesa má um annars staðar hér á
síðunni er stefnt að því að
þátttökufyrirtækin/stofnanirnar útbúi stefnu um vellíðan, fjarvistir og
endurkomu til vinnu. Margar leiðir er hægt að fara að
því að búa til slíka stefnu, en hún snýst meðal annars um að skapa
vinnuumhverfi sem hefur áhrif á vellíðan fólks
þannig að heilbrigða einstaklinga langi til að mæta í vinnuna. Gott
vinnuumhverfi er þar sem starfsfólk er umburðarlynt gagnvart þeim sem
vegna
heilsu sinnar þurfa að hliðra til varðandi vinnuaðstæður, vinnutíma eða
verkefni. Einnig þar sem skilningur er á því að veiku
starfsfólki leyfist að vera veikt í ró og næði í stað þess að þrýsta á
að það mæti sem fyrst til vinnu.
Lykilatriði til að viðhalda lágmarks fjarvistum er góður vinnustaður og
gott vinnuumhverfi.
Nánar á
virk.is