Translate to

VIRK - endurhæfing

Kynning VIRK á atvinnulífssýningunni Skagafjörður 2012 Lífsins gæði og gleði

Dagana 28.-29. apríl var haldin atvinnulífssýning á Sauðárkróki sem bar nafnið  Skagafjörður 2012 Lífsins gæði og gleði. Sýningunni var einkum ætlað að draga fram þann fjölbreytileika sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða í þjónustu, framleiðslu og menningu á glæsilegri sýningu.   

Á sýningunni voru um 70 sýningarbásar þar sem á annað hundrað sýnendur tóku þátt og kynntu vörur sínar og þjónustu.

VIRK starfsendurhæfingarsjóður tók þátt í þessum mikla menningarviðburði Skagfirðinga og var með  bás á sýningunni þar sem sýningargestir gátu spurst fyrir og rætt málin. Það voru fjölmargir gestir sem nýttu sér það en áætlað er að á fjórða þúsund gestir hafi sótt sýninguna.

Einnig voru haldnar málstofur í tengslum við sýninguna og voru Svava Jónsdóttir sviðstjóri fyrirtækjasviðs VIRK og Hanna Dóra Björnsdóttir ráðgjafi VIRK á Nv-landi með erindi varðandi Forvarnir og fjarvistastjórnun á vinnustað. Erindið var hugsað sem kynning og hvatning til vinnustaða enda mannauður fyrirtækis eða stofnunar dýrmæt eign sem vert er að hlúa að. Heiti sýningarinnar Lífsins gæði og gleði endurspeglaðist í stemningunni sem ríkti þessa helgi og er til vitnisburðar um að í samfélaginu búi kraftur og gleði sem virkja þurfi áfram. 

Nánari umfjöllun um sýninguna:

Á feykir.is

Deila