Translate to

VIRK - endurhæfing

Nýr ráðgjafi

Steinhildur Sigurðardóttir er nýr ráðgjafi sem ráðinn hefur verið til starfa hjá stéttarfélögum í  Hvalfirði, Borgarfirði, á Mýrum, á Snæfellsnesi og í Dalasýslu í samstarfi við VIRK.  Steinhildur útskrifaðist sem sjúkraliði árið 1986 og hóf þá störf á Borgarspítalanum þar sem hún starfaði á handlæknisdeildum í 16 ár.  Hún lauk B.A. prófi í félagsfræði frá H.Í. árið 2001 og starfsréttindanámi í félagsráðgjöf frá H.Í. árið 2002.  Undanfarin tíu ár hefur hún starfað hjá Félagsþjónustu Hafnarfjarðar með starfsendurhæfingu sem sérsvið.
Starfsstöð Steinhildar er hjá Stéttarfélagi Vesturlands í Borgarnesi.
Deila