Nýr sérfræðingur hjá VIRK
Jónína
Waagfjörð hefur verið ráðin sem verkefnastjóri hjá VIRK fyrir þróunarverkefnið
Virkur vinnustaður. Hún er sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands og hefur starfað
sem slíkur í yfir 20 ár. Árið 1989 útskrifaðist hún með MSc gráðu innan
taugasjúkdóma og hreyfistjórnunar frá Boston University í Bandaríkjunum. Eftir
útskrift starfaði hún í Bandaríkjunum við sjúkraþjálfun þar sem hún kenndi
sjúkraþjálfun við University of South Alabama og vann einnig við meðhöndlun
sjúklinga. Síðustu 3 árin starfaði hún sem yfirmaður endurhæfingarstöðvar í
úthverfi Detroit í Michigan fylki. Eftir heimkomu tók Jónína við lektorsstöðu
við læknadeild Háskóla Íslands innan sjúkraþjálfunar og rannsóknastöðu við
Landspítala Háskólasjúkrahús og starfaði við það í 4 ár þar til hún flutti til
Bretlands.
Sjá nánar á virk.is
Sjá nánar á virk.is