Translate to

VIRK - endurhæfing

Veikindafjarvera Dana í einkageiranum 7,3 dagar.

Þriðja árið í röð fækkar veikindadögum á dönskum vinnustöðum og voru þeir að meðaltali 7,3 dagar árið 2011 í einkageiranum hjá fólki í fullu starfi eða 3,3%.  Árið 2008 voru fjarverudagarnir að meðaltali 8,7. Einnig hefur dregið úr fjarveru hjá hinu opinbera en töluvert minna.

Fyrirtækjaráðgjafi hjá CABI (Center for Aktiv BeskæftigelsesIndsats) segir að þennan árangur megi þakka því mikla átaki sem hafi átt sér stað á dönskum vinnumarkaði þar sem unnið er markvisst með fyrirtækjum til að ná þessu markmiði. „Það er kominn skilningur á því að veikindafjarvera stafar ekki einungis af bakteríum eða vírusum og að allir bera ábyrgð á vinnustaðnum og geta lagt sitt af mörkum," segirCamilla Høholt Smith í viðtali í septemberhefti Agenda. Hún bendir á að séu vandamál á vinnustaðnum sé mikilvægt að ræða þau í hreinskilni því þau geti verið ástæða fjarverunnar. Þetta krefjist ákveðinna hæfileika hjá stjórnendum. Prófessor við Árósaháskóla segir að á þeim vinnustöðum þar sem tilkynna á veikindi beint til yfirmanns séu fjarvistir marktækt færri en þar sem einungis þarf að tilkynna veikindi til móttökunnar.
Sjá nánar á virk.is 

Deila