Fjöldi greina og viðtala í Ársriti um starfsendurhæfingu
Atvinnuþátttaka eykur lífsgæði, er fyrirsögn í einu þeirra viðtala sem birt
eru í Ársriti um
starfsendurhæfingu 2012 og gefið var út í tengslum við ársfund VIRK nú á
vordögum. Í viðtalinu segir Sigrún Sigurðardóttir ráðgjafi VIRK í
starfsendurhæfingu, sem starfar fyrir Rafiðnaðarsambandið og fleiri
stéttarfélög, meðal annars: „Mér finnst afar mikilvægt að fólk komist aftur
til vinnu þótt það sé einungis í hlutastarfi til að byrja með. Þó að fólk geti
ekki sinnt sínu gamla starfi er það ekki endilega óvinnufært." Síðan
ræðir hún um starfsprófanir og segir:„Einn af mínum félagsmönnum var að
kljást við afleiðingar af alvarlegu slysi og var ekki fær um að fara í sitt
fyrra starf. Hann fór þessa leið og fékk í kjölfarið ráðningu."
Sjá nánar á virk.is
Sjá nánar á virk.is