Mikil þátttaka og áhugaverð erindi á ársfundi VIRK
Um 200 manns mættu á ársfund VIRK 2012 sem haldinn var í salnum Norðurljós í Hörpu síðastliðinn fimmtudag (12. apríl 2012). Fundurinn hófst með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra. Vigdís Jónsdóttir fór síðan yfir starfsemi VIRK á síðasta ári og stefnu til framtíðar og að því loknu hélt Ingibjörg H. Jónsdóttir prófessor við Institute of Stress Medicine í Gautaborg áhugavert erindi um reynslu og niðurstöður nýjustu rannsókna varðandi forvarnir og starfsendurhæfingu vegna kulnunar og síþreytu. Að loknu kaffihléi voru síðan hefðbundin ársfundarstörf á dagskrá þar sem ársreikningur var samþykktur, endurskoðandi kjörinn og tilkynnt um skipan í stjórn til næstu tveggja ára. Stjórn og stofnaðilar lögðu til breytingar á skipulagsskrá sem voru samþykktar á fundinum og miða þær að því tryggja aðild Landssamtaka lífeyrissjóða að stjórn og fulltrúaráði VIRK.
Nýtt ársrit VIRK um starfsendurhæfingu er komið út og var því dreift á fundinum. Þeir sem vilja fá eintak af ársritinu geta nálgast það á skrifstofu VIRK eða sent póst á virk@virk.is og fengið það sent.
Rafræna útgáfu af ársritinu er einnig að finna hér: Ársrit VIRK 2012
Einnig er hægt að nálgast önnur gögn af ársfundinum hér á heimasíðu VIRK þar á meðal afrit af glærum Vigdísar Jónsdóttur framkvæmdastjóra VIRK og upplýsingar frá Ingibjörgu Jónsdóttur Prófessor við Institute of Stress Medicine í Gautaborg.