Nýir ráðgjafar
Nýir ráðgjafar hafa tekið til starfa hjá stéttarfélögum í samstarfi við
VIRK. Þetta eru Helga Bryndís Kristjánsdóttir og Harpa Þórðardóttir sem hafa
hafið störf hjá Eflingu, Hlíf og Sjómannafélagi Íslands, með aðsetur hjá
Eflingu, Hulda Gunnarsdóttir, Sif Þórsdóttir og Hildur Petra Friðriksdóttir
sem starfa hjá VR og Bjarki Þór Baldvinsson sem hefur hafið störf hjá
stéttarfélögum á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæði, með aðsetur hjá Einingu -
Iðju á Akureyri. Sjá nánar á virk.is |