Samstarf við lækna
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður leggur áherslu á gott samstarf við lækna og
annað fagfólk sem sinnir heilbrigðisþjónustu og endurhæfingu. Markvisst
hefur verið unnið að því að þróa skilvirk samskipti og samvinnu við heimilislækna
vegna sameiginlegra skjólstæðinga. Nú þegar er VIRK í skipulögðu samstarfi við
þrjár heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og á nokkrum stöðum á
landsbyggðinni er einnig kominn vísir að svipuðu samstarfi. Samstarfið felst í
mánaðarlegum fundum þar sem m.a. er farið yfir flókin einstaklingsmál og
tilvísunum komið á framfæri. Með markvissu samstarfi aukast líkur á að leið
einstaklings í gegnum kerfið sé heildstætt ferli og starfsendurhæfing skili
árangri.
Sjá nánar á virk.is
Sjá nánar á virk.is