Sjúkrasjóður Verk-Vest
Atvinnurekendur greiða sem svarar 1% af öllum launum verkafólks og verslunarmanna í sjúkrasjóð, nema ríki sem greiðir 0,75% og sveitarfélög sem greiða 0,33%. Í staðinn er réttur til launa í veikindum og tryggingar mun betri í kjarasamningum við þessa aðila. Af sjómönnum var fram að 30. okt. 2004 greitt 1,5% af kauptryggingu háseta í sjúkrasjóð, en iðgjald af sjómönnum er eftir þann tíma 1% af öllum launum eins og hjá öðrum á almenna markaðnum. Sjúkrasjóði er ætlað að styrkja sjóðfélaga í veikindum og öðrum áföllum sem valda tekjumissi. Sjóðurinn getur einnig varið fé til fyrirbyggjandi verkefna á sviði heilbrigðis- og öryggismála.
Sterkari saman
Sameining verkalýðsfélaga á Vestfjörðum hefur ekki síst orðið launþegum til hagsbóta hvað varðar réttindi í sjúkrasjóði. Með sameiningunni hefur orðið til öflugur sjúkrasjóður sem stendur undir miklu meiri réttindum en hægt var í mörgum smærri einingum. Þannig hafa dagpeningar sem hlutfall af launum hækkað, aðrir styrkir sem voru greiddir hjá félögunum fyrir sameiningu hafa einnig hækkað og nýir verið teknir upp.
Greiðslur úr sjóðnum
Greiddir eru sjúkradagpeningar, útfararstyrkur, jólaglaðningur til aldraðra, styrkur vegna meðferðar við áfengis- spila- eða fíkniefnasýki, dagpeningar vegna vinnutaps vanfærra kvenna af heilsufars- eða öryggisástæðum, fæðingarstyrkur, styrkur vegna tæknifrjóvgunar, styrkur vegna dvalar á Heilsustofnun í Hveragerði og inneignatengdir styrkir vegna t.d. líkamsræktar, rannsókna og hjálpartækja. Nánari upplýsingar um styrki fást með því að smella á viðeigandi tengil hér fyrir neðan.
Reglur um greiðslur
- Dagpeningar eru greiddir mánaðarlega.
- Réttur til styrks fyrnist á 12 mánuðum frá því að bótaréttur skapaðist.
- Þegar bótaréttur er fullnýttur öðlast viðkomandi ekki rétt á greiðslu á ný fyrr en greitt hefur verið af honum til sjóðsins í 2 mánuði.
- Dagpeningar greiðast ekki til ellilífeyrisþega eða þegar um varanlega örorku er að ræða.
Umsóknir og læknisvottorð
Umsóknir um dagpeninga og aðrar greiðslur skulu vera skriflegar og þeim þurfa að fylgja læknisvottorð. Sjóðurinn endurgreiðir umsækjendum kostnað af læknisvottorðum vegna umsóknar. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsins eða með því að smella á viðeigandi tengil hér fyrir neðan.
Skrárnar eru á Acrobat Reader formi. Þú getur sótt forritið með því að smella hér.
Eyðublöð
- Vottorð vinnuveitanda um starfstíma
- Umsókn um styrk vegna tæknifrjóvgunar
- Umsókn um styrk vegna tannlækninga
- Umsókn um styrk vegna endurhæfingar
- Umsókn um styrk vegna krabbameinsskoðunar
- Umsókn um styrk vegna dvalar á Heilsustofnun
- Umsókn um inneignartengdan styrk
- Umsókn um fæðingarstyrk
- Umsókn um dánarbætur
- Umsókn um dagpeninga