Translate to

Fréttir

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Frá aðalfundi 2013 Frá aðalfundi 2013

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2014 kl.18:30, á Hótel Ísafirði.

Áður en gengið verður til hefðbundinnar dagskrár aðalfundar verður boðið upp á léttan málsverð.


Dagskrá:

  • Skýrsla stjórnar
  • Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2013
  • Tillögur um lagabreytingar
  • Tillögur um reglugerðabreytingar:
  • a)    Sjúkrasjóðs
  • b)   Starfs- og siðareglur
  • c)    Vinnudeilusjóðs
  • Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
  • Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
  • Kosning siðanefndar
  • Kynning á skýrslu um svarta atvinnustarfsemi
  • Önnur mál

Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt. Áríðandi er að staðfesta þátttöku við skrifstofu félagsins á Ísafirði í síðasta lagi mánudaginn 26. maí 2014.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Deila