Jákvæðar breytingar eftir sjö mánuði
Jákvæð breyting hefur orðið á viðhorfi starfsfólks til veikindafjarveru, það
er umburðarlyndara, samkenndin er meiri og augu starfsfólks hafa opnast fyrir
lausnarmiðuðu starfi. Þetta er hluti af mati stjórnenda þeirra 26 vinnustaða
sem eru þátttakendur í þróunarverkefninu Virkum vinnustað eftir sjö mánaða
þátttöku. Síðastliðið vor skiluðu allir vinnustaðirnir framvinduskýrslu sem helstu
niðurstöður hafa verið unnar upp úr. Í ljós kom einnig að
fræðslufyrirlestrar á vegum VIRK, verkefnavinna starfsfólks um hvað er jákvætt
og hvað mætti betur fara, auk opinna umræðna í kjölfarið, virðast hafa skilað
mestum árangri um breytt viðhorf.
Sjá nánar á virk.is
Sjá nánar á virk.is