Translate to

Fréttir

BÓTHILDUR - frítt fyrir félagsmenn Verk Vest

Í framhaldi af námskeiðum sem félagið hefur staðið fyrir um fjármál heimilanna, þá hefur Verkalýðsfélag Vestfirðinga nú fest kaup á nokkru magni af  bókhaldsforritinu BÓTHILDI. Félagar í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga geta nú fengið forritið BÓTHILDI  sér að kostnaðarlausi á skrifstofu félagsins. Þeir sem ekki komast á skrifstofuna geta fengið BÓTHILDI  senda í pósti.  Þá er rétt að minna á að fræðslumiðstöð Vestfjarða verður með námskeið í notkun forritsins dagana 17. og 31. mars og 21.apríl næstkomandi. Öll viljum við hafa betri yfirsýn yfir fjármál heimilanna og eru félagsmenn er hvattir til að nýta sér námskeiðið til þess. Félagið minnir á að í gegnum fræðslusjóði sem félagið er aðili að er hægt að sækja um endurgreiðslu á námskeiðskostnaði.   
Deila