Translate to

Fréttir

Frí námskeið með stuðningi stéttarfélaga

Verk vest er í samstarfi við fræðslumiðstöð Vestfjarða um frí námskeið fyrir félagsfólk.

Samstarfið felur í sér að starfmenntasjóðir félaganna greiða að fullu þáttökugjöld ýmissa námskeiða og getur fólk í þessum félögum því sótt þau námskeið FRÍTT. 

Þeir sem vilja nýta sér þetta þurfa að merkja við félagið okkar þegar í skráningarferlinu sem er á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

Námskeiðin sem um ræðir eru undir flipanum stéttarfélög á síðu frmst.is

Það er von okkar að sem flest félagsfólk nýti sér þetta góða tilboð, en nokkur námskeið eru komin inn og fleiri gætu átt eftir að bætast við.

 

Deila