Translate to

Fréttir

Samningar náðust í kjaradeilu starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar

Séð yfir Reykhóla Séð yfir Reykhóla

Saminganefnd starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum náði á áttunda tímanum í gærkvöldi að lenda kjaraviðræðum við SA og fulltrúa eigenda Þörungaverksmiðjunnar með endurnýjun kjarasamnings til þriggja ára. Óhætt er að segja að meginmarkmiðum samningarnefndar um að ná auknum kjarabótum fyrir þá lægst launuðu hafi tekist og vel það. Samninganefndin lagði upp með tvær launatöflur eina fyrir dagvinnufólk og aðra fyrir vaktmenn. Niðurstaðan er sú að á samningstímanum hækka byrjunarlaun dagvinnufólks um rúm 50 þúsund eða tæp 30%. Laun vaktmanna taka sömu hækkunum og samið var um í almenna samningnum og hækka um 34 þúsund á samningstímanum eða um rúm 20%. Þá voru einnig gerðar breytingar á mætingarbónus og löndunarálagi ásamt því að nýtt öryggisálag verður greitt fyrir slysa og óhappalausa mánuði í verksmiðjunni. En megin markmiðið með slíkri álagsgreiðslu er að stuðla að auknu öryggi og góðri umgengni á vinnusvæðum starfsmanna. Kynningafundur um samninginn verður í matsal Þörungaverksmiðjunnar þann 15.júní næstkomandi kl.12.00 og verður kjörfundur að lokinni kynningu.

Deila