Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs vegna stjórnarkjörs í Verk-Vest er auglýstur í dag, 12. febrúar 2009. Frestur til að bjóða fram annan lista eða eða gera tillögur um breytingar í einstök stjórnarsæti er 14 dagar frá deginum í dag og rennur út um hádegi 26. febrúar n.k. Hverri tillögu skulu fylgja meðmæli 25 fullgildra félagsmanna og skriflegt samþykki þeirra sem boðnir eru fram.

Nánari upplýsingar eru í lögum félagsins, hér.

Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs er hér.

13. október 2008

Framhaldsnám trúnaðarmanna

Fyrirhugað er að halda framhaldsnámskeið fyrir trúnaðarmenn hjá Verk Vest dagana 27. - 31. október nk. 3ja daga námskeið fyrri hluti og 2ja daga námskeið seinni hluti, dagana 3. - 7. nóvember. Námskeiðið er framhald af þeim námskeiðum sem félagið stóð fyrir sl. vor í samstarfi við Fos-Vest. Á áætlun er að uppbygging þeirra verði með áþekku sniði og námskeiðanna í vor þ.e. kennt verði 3 daga fyrri vikuna og 2 daga seinni vikuna.

Námskeiðið er einnig ætlað trúnaðarmönnum sem hafa starfað einhvern tíma og hafa grunnnámskeið trúnaðarmanna að baki. Trúnaðarmenn félagsins eru beðnir að skrá sig sem fyrst svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir í samstarfi við vinnuveitendur. Skráningu er hægt að framkvæma á netfangið finnbogi@verkvest.is og eins á skrifstofu félagsins í símum 4563190 eða 4565190.

Höfuðstöðvar Verk Vest
Höfuðstöðvar Verk Vest

Fundur stjórnar og trúnaðarmannaráðs Verk Vest verður haldinn miðvikudaginn 17. september nk. kl 20:00 í húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði.

 

Dagskrá.

  • 1. Kosning í kjörnefnd Verk Vest
  • 2. Kjarasamningur SGS við sveitarfélögin - samningsumboð
  • 3. Beitningarsamningurinn
  • 4. Staða efnahagsmála - endurskoðunarákvæði kjarasamninga
  • 5. Endurhæfingarsjóður
  • 6. Önnur mál.

 

Gestur fundarins er Gylfi Arnbjörnsson sem mun fara yfir stöðu efnahagsmála,  endurskoðunarákvæði kjarasamninga ásamt þeirri vinnu sem er í gangi vegna endurhæfingarsjóðs.

Vikurnar 11. - 18. júlí á Akureyri og 25. júlí - 1. ágúst sem tilkynnt var um hér á vefnum þ. 9. júlí eru báðar leigðar.

Upplýsingar um laus orlofshús eru undir Orlofshús og íbúðir til vinstri.

« 1 af 3 »
Vegna forfalla er íbúðin á Akureyri laus 11. - 18. júlí og sumarhúsið í Biskupstungum 25.júlí - 1.ágúst.  Fyrstir kom fyrstir fá. 
27. júní 2008

Láttu ekki plata þig !

Verum vakandi !
Verum vakandi !
Heimasíðan www.rettindi.is , sem er vefur un réttindi ungs fólks á vinnumarkaði, hefur nú verið uppfærður....
Meira
27. júní 2008

Laust í Svignaskarði

Nýja húsið í Svignaskarði
Nýja húsið í Svignaskarði

Vegna forfalla er nýja húsið í Svignaskarði laust tímabilið 4. - 11. júlí.

----- HÚSIÐ HEFUR VERIÐ LEIGT ---

Hér er hægt kanna hverjar hækkanir eiga að vera samkvæmt launaþróunartryggingar kjarasamninga landsambanda ASÍ og Samtaka atvinnulífsins.

 

Nokkrar vikur eru ennþá lausar til umsóknar í orlofshúsum félagsins. Nánari upplýsingar eru á vefnum undir Orlofshús og íbúðir.  Fystir koma fystir fá.
6. maí 2008

Sumaropnun skrifstofu

Sumaropnun Skrifstofu Verkalýðsfélaganna tekur gildi í dag 6. maí og gildir til 30. september næstkomandi. Opnunartími er frá kl.08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 alla virka daga.
Vefumsjón