Translate to

Fréttir

Breytingar á reglum Sveitamenntar og Ríkismenntar. Teknir upp 100% styrkir og einnig tveggja ára geymdur réttur.

Á fundum stjórna Sveitamenntar og Ríkismenntar í desember 2023 var samþykkt að einstaklingur geti átt uppsafnaðan rétt til tveggja ára eins og til þriggja ára.  Tekur sú breyting á reglum gildi þann 1. janúar 2024. 

Ný regla er eftirfarandi;

Félagsmenn sem hafa ekki nýtt rétt sinn í sjóðunum síðustu tvö ár eiga rétt á allt að kr. 260.000 í styrk fyrir eitt samfellt nám eða námskeið samkvæmt nánari reglum sjóðsins. Uppsafnaður réttur skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000 á tíma uppsöfnunar. Sá styrkur kæmi þó til frádráttar. Reglan um uppsafnaðann þriggja ára rétt kr. 390.000 fyrir samfellt nám eða námskeið er áfram í gildi. 

100% styrkir með kr.130.000 hámarki á ári.

Þá var einnig tekin ákvörðun í stjórnum þessara tveggja sjóða að falla frá hlutfallsstyrkjum til einstaklinga og veita alltaf 100% styrki, þó að hámarki kr. 130.000.- á ári. Þetta mun einnig koma verulega til móts við þá einstaklinga sem nýta sjóðina til að niðurgreiða námskeið og nám sem þeir kunna að sækja og stunda.

Sem sagt, áður voru greiddir 80% styrkir en f.o.m. 1.janúar 2024 verða greiddir 100% styrkir en að hámarki eins og áður kr. 130.000.- á ári.

Báðar þessar breytingar á reglum taka gildi 1.janúar 2024 gilda gagnvart námi og námskeiðum sem hefjast eftir þann tíma.

Deila