Translate to

Fréttir

Endurskoðun launa félagsliða og starfsólks við veitur hjá sveitarfélögum

Endurskoðun launa Félagsliða og starfsólks við veitur hjá sveitarfélögum er lokið og gildir hækkun launa afturvirkt frá 1. janúar 2024. Laun félagsliða hækka mismunandi mikið eftir starfssviði og þá kemur inn nýtt starf sem heitir Félagsliði á heimili fyrir fatlað fólk (þyngri þjónusta) sem raðast í launaflokk 141. Þá er umtalsverð breyting hjá félagsliðum á hjúkrunar og dvalarheimilum sem fara úr launaflokki 126 í launaflokk 140. 

Hjá starfsfólki við veitur sveitarfélaga verða nokkar breytingar á launum til hækkunar og koma þar inn tvö ný starfsheiti, Verkstjóri veitna og Starfsmaður veitna. 

Gert er ráð fyrir að leiðréttingar komi til útgborgunar 1. maí og er félagsfólk í Verk Vest hvatt til að fylgjast vel með hvort hækkun skilar sér með réttum hætti.

 

Deila