Translate to

Fréttir

Framhaldsaðalfundur Verk Vest mánudaginn 4. september

Alþýðuhúsið á Ísafirði Alþýðuhúsið á Ísafirði

Samkvæmt ákvörðun aðalfundar félagsins þann 8. maí 2023, boðar stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga til framhalds aðalfundar mánudaginn 4. september kl.18.00 í fundarsal félagsins í Alþýðuhúsinu á Ísafirði. Einnig er hægt að taka þátt gegnum fjarfund og er félagsfólk hvatt til að nýta sér þann möguleika.

Dagskrá:

1. Afgreiðsla ársreiknings 2022

2. Önnur mál

Stjórn hvetur félagsfólk til þátttöku á fundinum sem verður einnig sendur út í fjarfundi. Mikilvægt er að skrá þátttöku á fjarfundi á postur@verkvest.is eða í síma 456 5190. 

Deila