Translate to

Fréttir

Stöðugleika- og velferðarsamningur í höfn

Formenn SGS og Samiðnar undirrita kjarasamninginn Formenn SGS og Samiðnar undirrita kjarasamninginn

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sem er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS) og Sambandi iðnfélaga (Samiðn) hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Samningurinn var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara á sjötta tímanum í dag. Um er að ræða langtímasamning en gildistími samningsins er frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028.

Kjarasamningur - undirritað eintak

Stöðugleika- og velferðarsamningur

Meginmarkmið samnings 

  • Lækkun verðbólgu og vaxta með samstilltu átaki verkalýðshreyfingar, ríkis, atvinnurekenda, sveitarfélaga og annarra​.
  • Endurreisn tilfærslukerfa heimila vinnandi fólks​.
  • Kaupmáttaraukning verði á samningstímanum.

 Launahækkanir 

Hækkanir eru á formi blandaðrar leiðar krónutölu og prósentu. Launahækkanir koma til áhrifa á fjórum dagsetningum með árs millibili á samningstíma.

  1. febrúar 2024 3,25% eða að lágmarki 23.750 kr.
  1. janúar 2025 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.
  1. janúar 2026 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.
  1. janúar 2027 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.


Krónutöluhækkun á samningstíma er 95.000 kr. sem jafngildir 24% hækkunar lægstu launa. 

Aðrir kjaratengdir liðir taka almennum hækkunum í kjarasamningi. 

Ár            Orlofsuppbót         Desemberuppbót

2024​       58.000​ kr.               106.000​ kr.

2025​       60.000​ kr.               110.000​ kr.

2026​       62.000​ kr.               114.000​ kr.

2027​       64.000​ kr.               118.000​ kr.

Forsenduákvæði 

Samningurinn stendur og fellur með því að markmið um lækkun verðbólgu náist, sem aftur eru forsenda vaxtalækkunar. Til að styrkja forsendur og markmið kjarasamninganna mun sérstök launa- og forsendunefnd taka þegar til starfa. Verkefni nefndarinnar er að fylgjast með framvindu þeirra þátta í efnahagslífinu sem áhrif geta haft á markmið samningsins, leggja formlegt mat á forsendur kjarasamningsins og eftir atvikum semja um viðbrögð við forsendubresti sem treysta forsendur samningsins og stuðla að því að hann haldi gildi sínu. 

Einnig eru í samningnum tvö forsenduákvæði sem koma snúa að annars vegar að vörn gegn launaskriði og hins vegar tryggingu launafólks á hlutdeild í framleiðni aukningu.

Framlag stjórnvalda

Framlag stjórnvalda er mikilvægur hluti af ávinningi kjarasamningsins. Ríkisstjórnin hefur kynnt aðgerðaáætlun sem felur í sér fjárframlög til ýmissa mála sem gagnast vinnandi fólki. Er þar um að ræða aukningu ríkisútgjalda um 20 milljarða á ári. Helstu atriðin í framlagi stjórnvalda eru: 

Húsnæðisstuðningur

  • Sérstakur vaxtastuðningur vegna hás vaxtakostnaðar
  • Húsnæðisbætur – Grunnfjárhæð hækkar. Sérstök viðbót miðast að því að styðja betur við fjölmennari fjölskyldur

 Barnafjölskyldur

  • Barnabætur, markmiðið er að fjölga viðtakendum barnabóta og að skerðingarmörkin verði hækkuð í átt að miðtekjum
  • Fæðingarorlof – Hámarksupphæð hækkar úr 600.000 kr. í 900.000 kr. á tímabilinu
  • Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

 Önnur atriði

  • Gjaldskrár hins opinbera – Ríkið skuldbindur sig til að hækka ekki umfram 2,5% á árinu 2025. Tilmæli til sveitarfélaga um að endurskoða áður útgefnar hækkanir og halda þeim innan 3,5% vegna barnafjölskyldna.

Ítarlegt kynningarefni verður birt hér á heimasíðunni næstu dag og í kjölfarið fer fram rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn meðal félagsfólks. Niðurstaða afgreiðslu samningsins á að liggja fyrir ekki síðar en miðvikudaginn 20. mars næstkomandi. 

Deila