Vegna forfalla er laust í Ásholti dagana 2. - 8. september. Nú gildir regla fyrstur kemur fyrstur fær.
Þeir sem þurfa að eiga erindi við skrifstofu verkalýðsfélaganna í Pólgötu á Ísafirði hafa orðið varir við umtalsverr rask við inngang hússins. Allt hefur þetta nú gengið upp með góðra manna aðstoð og þolinmæði þeirra sem hafa átt erindi á skrifstofuna. Á morgun föstudag verður hinsvegar annað upp á teningnum þar sem frá kl.08.15 - 12.15 verður steypuvinna og aðgengi um inngang verður teppt af þeim sökum. Þó verður hægt verður að ná sambandi við starfsfólk í síma eða um internetið.  Það er von starfsfólks að þessi óþægindi komi ekki að sök og biðjumst velvirðingar á þessu raski.
Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í júní síðastliðnum (breyting á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða) þá ber öllum launagreiðendum að greiða 0,13% af heildarlaunum allra starfsmanna sinna til VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs frá og með 1. september 2011 - þ.e. miða skal við iðgjaldastofn septembermánaðar 2011.  Fram að þessum tíma hefur einungis verið kveðið á um greiðsluskyldu í kjarasamningum en nú nær hún til allra launamanna samkvæmt lögum þar með talið til sjálfstæðra atvinnurekenda og þeirra sem ekki eru félagsmenn stéttarfélaga.

Launagreiðendum ber að standa skil á iðgjaldinu til viðkomandi lífeyrissjóðs með sama hætti og gildir um lífeyrisiðgjald og munu lífeyrissjóðir síðan ráðstafa gjaldinu til VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs.

Ráðgjafi Virk á Vestfjörðum er Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari og hefur hún aðstöðu hjá Verk Vest í Pólgötu 2 á Ísafirði.

18. ágúst 2011

Uppselt í Strandaferð

Eins og skýrt var frá hér á vefnum á þriðjudag losnuðu vegna forfalla tvö sæti í ferð Verk-Vest á Strandir nú um helgina.
Tveir félagsmnenn gripu tækifærið og skráðu sig, svo nú er orðið fullskipað í ferðina á ný.
Lagt verður af stað eftir hádegi á morgun, föstudag.
Frá kynningarfundi um Grunnnám byggingaliða hjá Fræðslumiðstöðinni í janúar s.l.
Frá kynningarfundi um Grunnnám byggingaliða hjá Fræðslumiðstöðinni í janúar s.l.

Fimmtudaginn 18. ágúst kl. 20 verður haldinn kynningarfundur um raunfærnimat hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Raunfærnimat gengur út á að meta raunverulega þekkingu og færni sem fólk hefur aflað sér í störfum sínum, án þess að hafa að baki þá menntun sem fæst í skólum.
Í auglýsingu á vef Fræðslumiðstöðvarinnar segir:
" Í raunfærnimati er gengið út frá þeirri grundavallarsýn að meira máli skipti hvaða þekkingu og færni fólk búi yfir, heldur en hvernig þess hafi verið aflað.

...
Meira
Vefumsjón