Nemendur í Landnemaskóla Fræðslumiðstöðvarinnar í heimsókn hjá Verk-Vest
Nemendur í Landnemaskóla Fræðslumiðstöðvarinnar í heimsókn hjá Verk-Vest
« 1 af 2 »
Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2011-2012 er kominn út og hefur verið dreift í öll hús á Vestfjörðum. Þar er að finna yfirlit yfir þau námskeið og námsleiðir sem búið að er ákveða að bjóða upp á í vetur. Eins og áður kennir þar margra grasa; námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, eins og t.d. Grunnmenntaskólinn, Skrifstofuskólinn og Aftur í nám verða á dagskrá, auk fleiri starfstengdra námskeiða. Boðið er upp á nám í ensku, þýsku, spænsku, ítölsku og pólsku - og að sjálfsögðu íslensku fyrir útlendinga...
Meira
15. september 2011

Loksins höggvið á hnútinn

Frá starfsmannafundi í Eyrarodda
Frá starfsmannafundi í Eyrarodda
Gengið hefur verið frá kaupum Arctic Fish ehf. á eignum þrotabús
Eyrarodda ehf. samkvæmt því sem fram kemur í fjölmiðlum. Hið nýja
fyrirtæki mun með kaupunum eignast nánast öll vinnsluhús þrotabúsins
ásamt línubátnum Stjána Ebba.  Verkalýðsfélag Vestfirðinga fagnar því að
loksins skuli hafa tekist að höggva á hnút þeirrar óvissu sem málefni
fiskvinnslu á Flateyri hefur verið í undanfarna 8 mánuði. Hið nýja
fyrirtæki, sem er einn af aðaleigendum fiskeldisfyrirtækisins Dýrfisks,
hefur í hyggju að byggja starfsemina á vinnslu á eldisfiski ásamt að
vinna úr þeim sjávarafla sem mun berast á land á Flateyri. Samkvæmt
heimildum RÚV er haft eftir Sigurði Péturssyni forstjóra Arctic Fish
ehf. að þeir muni fara rólega af stað og verði um 4 - 5 störf að ræða í
byrjun...
Meira
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands fyrir hönd aðildarfélaga hefur lokið samningum við Bændasamtökin um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk sem vinnur landbúnaðarstörf. Samningurinn er á svipuðum nótum og kjarasamningar SGS við Samtök Atvinnulífsins. Samningurinn er afturvirkur og gildir frá og með 1. júní 2011. Nánar er greint frá innihaldi samningsins á heimasíðu SGS
13. september 2011

Trúnaðarmannanámskeið

Hagfræðingur Así á mikilli yfirferð
Hagfræðingur Así á mikilli yfirferð
Verk Vest heldur framhaldsnámskeið fyrir trúnaðarmenn félagsins dagana
6. - 7. október næst komandi. Áríðandi er að trúnaðarmenn félagsins
tilkynni þátttöku eins fljótt og auðið er. Trúnaðarmenn sem fóru á
námskeiðið í vor eru hvattir til að skrá sig og eru aðrir trúnaðarmenn
félagsins einnig hvattir til að sækja námskeiðið.  Kennslan fer fram í
húsnæði félagsins að Pólgötu 2 á Ísafirði.
 ...
Meira
6. september 2011

Laust í Flókalundi

Berin í Vatnsfirðinum eru falleg sem aldrei fyrr og nú er tækifær til að ná sér í nokkur því það eru lausir bústaðir í Flókalundi á næstu helgi.
Vefumsjón