6. október 2011

Trúnaðarmenn á námskeið

« 1 af 2 »
Góður hópur trúnaðarmanna Verk Vest víðsvegar af Vestfjörðum situr nú trúnaðarmannanámskeið sem haldið er í samstarfi við Félagsmálaskóla Alþýðu. Á námskeiðinu er farið yfir helstu mál er snúa að störfum trúnaðarmanna á vinnustaðnum ásamt grunnuppbyggingu vinnuréttarins. Námið fer fram í fundarsal Verk Vest á Ísafirði og sækja 13 trúnaðarmenn frá vel flestum sviðum vinnumarkaðarins námskeiðið.
5. október 2011

Þorskur og karfi lækka um 5%

Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur ákveðið 5% lækkun á verði þorsks og karfa í beinum viðskiptum milli skyldra aðila. Verðákvörðunin gildir frá og með 1. október 2011.

Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest samþykkti á fundi þann 20. september að bókasöfnum á Vestfjörðum yrði fært eintak af fyrsta bindi sögu verkalýðsbaráttu á Vestfjörðum "Vindur í seglum" eftir Sigurð Pétursson sagnfræðing, en bókin kom út fyrr á þessu ári. Það var samdóma álit fundarins að sagan væri ekki eingöngu saga baráttunnar fyrir bættum kjörum heldur væri hún í senn atvinnu- og mannlífssaga Vestfjarða. Því væri því nauðsynlegt að þetta merka rit yrði sem aðgengilegast á öllu félagssvæði Verk Vest. Þess má geta að bókin var kynnt hjá Ísfirðingafélaginu í Reykjavík við góðar undirtektir og er því beint til annarra átthagafélaga af Vestfjörðum að gera slíkt hið sama. Rétt er að benda á að bókin er til sölu á skrifstofu félagsins á Ísafirði en einnig er hægt að nálgast hana í helstu bókaverslunum.
23. september 2011

Mjólkina heim !

Frá trúnaðarráðsfundi Verk Vest
Frá trúnaðarráðsfundi Verk Vest
Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun Mjólkursamsölunnar  að áfram eigi að þrengja að þjónustu við íbúa á Vestfjörðum og nú með fækkun ferða með mjólkurafurðir. Ekki hafi verið nóg að skera niður starfsemina þannig að eingöngu eru 3 stöðugildi hjá MS á Vestfjörðum heldur megi gera ráð fyrir að MS ráðist í að taka niður nýleg og fullkomin tæki sem búið var að koma upp í Mjólkustöðinni á Ísafirði. Þessi tæki hefði jafnvel mátt nýta til annarskonar matvælavinnslu og skapa þannig fleiri störf en voru skorin niður eftir að MS hélt innreið sína á Vestfirði.

...
Meira
19. september 2011

Stjórn og trúnaðarráð

Frá trúnaðarráðsfundi s.l. vetur
Frá trúnaðarráðsfundi s.l. vetur
Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur boðað stjórn og trúnaðarráð félagsins til fundar annað kvöld, þriðjudaginn 20.september kl.20.00 í húsi félagsins á Ísafirði. Tilefni fundarins er kynning Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða á atvinnuvegatölum fyrir fjórðunginn.  Shiran Þórisson verkefnastjóri Vaxtasamnings Vestfjarða mun sjá um kynninguna fyrir hönd Atvest. Að lokinni yfirferð Shirans verður  eftirfarandi dagskrá:

1.       Kynning á atvinnuvegatölum fyrir Vestfirði

2.       Trúnaðarmannanámskeið 6 -7. október

3.       Formannafundur ASÍ 26. Október

4.       Mjólkursamlagið

5.       Önnur mál

Vefumsjón