Vélar frá KNH að störfum við gerð Suðurstrandavegar. Mynd: vb.is
Vélar frá KNH að störfum við gerð Suðurstrandavegar. Mynd: vb.is
Fyrr í morgun var kveðinn upp úrskurður hjá Héraðsdómi Vestfjarða þess efnis að verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði væri gjaldþrota. Fyrirtækið hafði áður verið í greiðlustöðvun frá því í apríl 2011 og í framhaldi leitað nauðasamninga, en heimild til nauðasamninga var felld úr gildi í síðustu viku. Grímur Sigurðsson hrl hjá Landslögum hefur verið skipaður skiptastjóri. Með gjaldþrotinu missa 17 félagsmenn í Verk Vest  vinnuna, en þeim hafði áður verið sagt upp störfum í hópuppsögn hjá KNH ó lok október á síðasta ári. Verk Vest átti óformlegan fund með nokkrum fyrrverandi starfsmönnum í morgun þar sem farið var yfir réttarstöðu þeirra í gjaldþrotaferlinu. Fyrirhugað er að halda sameiginlegan fund Verk Vest og Vinnumálastofnunar þar sem farið verður betur yfir það ferli sem nú tekur við. Ljóst er að Verk Vest mun reyna að hlaupa undir bagga með félagmönnum  sem ekki hafa fengið greidd laun síðan 1. desember síðast liðinn. Félagið hefur að sjálfsögðu boðist til að sjá um launakröfur fyrir hönd sinna félagsmanna.

Sjá einnig umfjöllun á BB.IS
16. janúar 2012

Ár frá gjaldþroti Eyrarodda

Frá fundinum í Sólborg á Flateyri
Frá fundinum í Sólborg á Flateyri
Fulltrúar þeirra stofnana í stoðkerfi Ísafjarðarbæjar sem komu að aðstoð við atvinnuleitendur á Flateyri eftir að fiskvinnslan Eyraroddi ehf. varð gjaldþrota, komu sama til fundar á Flateyri þann 12. janúar sl. Á fundinum, sem haldinn var í Sólborg á Flateyri, var farið yfir þau verkefni sem komið var af stað og hvernig þau hafa nýst atvinnuleitendum og samfélaginu á Flateyri. Mikið hefur mætt á starfsfólki þessara stofnana en að öðrum ólöstuðum má segja að Fræðslumiðstöðin hafi staðið vaktina með miklum sóma. Fjölmörg námskeið hafa verið haldin, bæði starfstengd og til sjálfstyrkingar. Má þar nefna íslensku kennslu, tölvunám, bókhald, vélastjórnarnám ásamt fiskvinnslunámi svo nokkur séu nefnd.

Þessi námskeið hafa gefið atvinnuleitendum meiri og fjölbreyttari möguleika. Atvinnuleitendur hafa þó orðið varir við að þeir sem hafa íslenskukunnáttu ganga frekar fyrir í vinnu en þeir sem ekki tala íslensku. Með þessum námskeiðum telja heimamenn að markmið Fræðslumiðstöðvarinnar að styrkja samfélagið hafi tekist mjög vel. Þetta merkir fólk á að meiri tenging er orðin innan samfélagsins meðal Íslendinga og fólks af erlendu bergi. Vinnumarkaðsátak í umhverfismálum sem unnið var í samstafi Vinnumálastofnunar og Ísafjarðarbæjar hefur einnig skilað jákvæðum straumum inn í samfélagið á Flateyri. Fræðslumiðstöðin mun halda út starfsemi á Flateyri fram á vorið og vonandi lengur ef áhugi, vilji og fjármunir verða til staðar.
Mikill hiti var í fundarmönnum út af skattlagningu sérignarsparnaðar
Mikill hiti var í fundarmönnum út af skattlagningu sérignarsparnaðar
« 1 af 2 »
Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest kom saman til fundar í gær og var vel mætt. Helstu
dagskrárefni fundarins voru endurskoðun kjarasamninga ásamt
skattlagningu viðbótarlífeyrissparnaðar. All heitar umræður urðu um þann
farveg sem samningamál stéttarfélaga inna ASÍ eru komin í. Var það mál
fundarmanna að sú breyting sem orðið hefur með tilkomu forsendunefndar
ASÍ, sem fest hefur verið í sessi, að ákvörðunartaka um framhald
viðræðna sé á höndum örfárra einstaklinga en ekki samninganefnda
aðildarfélaganna. Það verði síðan verkefni samninganefndanna að taka við
keflinu ef forsendunefnd metur stöðuna þannig að segja verði samningum
upp....
Meira
Þátttakendur á fiskvinnslunámskeið hjá Visi á Þingeyri
Þátttakendur á fiskvinnslunámskeið hjá Visi á Þingeyri
« 1 af 2 »
Góður gangur hefur verið á fiskvinnslunámskeiði hjá starfsfólki Vísis á Þingeyri. Kennsla hófst þann 3. janúar og lýkur með útskrift síðar í dag. Þrátt fyrir að þátttakendur væru að nokkuð blönduðu þjóðerni, Íslendingar, Pólverjar, Thailendingar og einn frá Lettlandi, þá hefur námskeiðið gengið mjög vel og hafa skapast mjög líflegar umræður, sérstaklega um kjara og réttindamál. Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendir þátttakendum námskeiðsins hamingjuóskir með áfangann og minnir á að von sé á framhaldsnámskeiðum þegar líður á árið. Félagið beinir þeim tilmælum til annarra fiskvinnslufyrirtækja á Vestfjörðum að taka vel á móti starfsfólki Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og staðfesta námskeið fyrir það starfsfólk sem ekki hefur lokið þessu kjarasamningsbundna námi.
Frá kennslunni á Flateyri
Frá kennslunni á Flateyri
Kjarasamningsbundið fiskvinnslunámskeið verður haldið hjá fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri strax eftir áramót. Um er að græða 40 stunda grunnnám sem veitir 2ja launaflokka hækkun og starfsheitið sérhæfður fiskvinnslumaður að námi loknu. Kennslan verður með svipuðu sniði og á Flateyri, þ.e. kennt verður á íslensku og túlkað yfir á pólsku. Á dögunum hélt félagið stutta kynningu á fyrirhuguðu námskeiði hjá starfsfólki Vísis og eru þeir starfsemnn sem ekki hafa lokið grunnáminu hvattir til að nýta sér þetta tækifæri og skrá sig á námskeiðið.
Vefumsjón