Gengið af séreign dauðri !
Gengið af séreign dauðri !
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir yfir stuðningi við ályktun miðstjórnar Samiðnar þar sem fram kemur hörð gagnrýni á inngrip stjórnvalda í frjálsa kjarasamninga með einhliða breytingu á skattlagningu séreignasparnaðar. Nái þessar fyrirætlanir stjórnvalda fram að ganga hlýtur verkalýðshreyfingin að hvetja félagsmenn sína til að hætta að leggja í séreignarsparnað umfram 2% af eigin launum.

Með þessari einhliða aðgerð stjórnvalda er verði að ganga að séreignarsparnaðarformi launþega dauðu. Líkt og bent er á í ályktun frá nýafstöðnu þingi SGS þar sem kemur fram að sá hluti sem er umfram 2% lendir að mestu í eignaupptöku stjórnvalda þar sem bæði inn- og útgreiðsla sparnaðarins verður skattlögð. Tvísköttunin leiðir til þess að milli 60 og 70% af höfuðstól sparnaðarins greiðist í skatt.

Við þær aðstæður sem almenningur býr við í dag er áríðandi að stjórnvöld hvetji til sparnaðar frekar en dregið verði úr honum. Fyrir liggur að vextir af sparnaðinum verða skattlagðir eins og launatekjur en ekki eins og fjármagnstekjur. Þannig verði mökuleikar til sparnaðar skertir eins leiða má líkum að verði þessi gjörningur að veruleika.

Mynd. Landsbjörg
Mynd. Landsbjörg
Á fundi formanna innan Sjómanna sambands Íslands ( SSÍ ) sem haldin var dagana 21 - 22. októberl síðast liðinn var samþykkt að senda eftirfarandi ályktun til Innanríkisráðherra um tafarlausa lausn á björgunarþyrlumálum Landhelgisgæslunnar. En frá og með næstu áramótum mun skapast neyðarástand þar sem aðeins ein björgunarþyrla mun verða til taks verði ekkert að gert. 

"Verði ekkert að gert strax varðandi þyrlukost Landhelgisgæslunnar er hætt við að hættuástand skapist fljótlega. Landhelgisgæslan á eina þyrlu og er með aðra til leigu til ársins 2014. Um næstu áramót fer önnur þyrlan í 3ja mánaða skoðun og verður þá aðeins ein þyrla tiltæk. Megin verkefni þyrlanna er að annast leit og björgun, en einnig sinna þær brýnum sjúkraflutningum og öðrum öryggistengdum verkefnum. Á 17 ára tímabili frá 1994 - 2010 hefur alls 1513 einstaklingum verið bjargað með þyrlum Landhelgisgæslunnar. Þar af voru bjarganir á sjó alls 361 og um helmingur þeirra utan 20 sjómílna. Í um 71% tilvika er talið að notkun björgunarþyrlu hafi skipt sköpum við björgunina. Það er því lífsspursmál fyrir sjómenn að alltaf séu tiltækar þyrlur til björgunar þegar óhöpp verða.

Formannafundur SSÍ haldinn í Stykkishólmi dagana 21. og 22. okt. 2011 skorar því á innanríkisráðherra að tryggja að Landhelgisgæslan fái nú þegar a.m.k. tvær stórar þyrlur til viðbótar núverandi þyrluflota sínum til að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki við eftirlits og björgunarstörf.
"

25. október 2011

Skiptakjör á rækjuveiðum

Mynd. Eyjan.is
Mynd. Eyjan.is
Þar sem veiðar á inndjúpsrækju eru nú hafnar að nýju eftir alllangt hlé er rétt að benda sjómönnum og útgerðaraðilum á að eldri samningar um skiptakjör sjómanna er enn í fullu gildi. En í samningnum um inndjúpsrækjuveiði segir að þegar bátar stunda rækjuveiðar skuli skipverjar hafa í sinn hlut aflaverðmæti, sem hér segir:
a. Hásetar 17,5%
b. Vélstjórar og netamenn 26,75%
(Netamenn eru hásetar sem vinna með skipstjóra að viðhaldi veiðarfæra og búnaðar skips á meðan vertíð stendur).
Þá er einnig tiltekið að greiðsla fyrir einstaka sjóferðir á rækjuveiðum við Ísafjarðardjúp skuli vera vera 19% af aflaverðmæti. Olía á rækjuveiðum við Ísafjarðardjúp skal dregin frá óskiptu. 
25. október 2011

ÁSHOLT - LEIGÐ !

Vegna forfalla er ein af íbúðum félagsins í Ásholtinu laus dagana 28 - 31. október næst komandi. Þannig að nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Íbúðin hefur verið leigð.
Mynd. markadsmenn.is
Mynd. markadsmenn.is
Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Verk Vest í samstarfi við Gústaf Gústafsson forstöðumann Markaðsstofu Vestfjarða bjóða upp á námskeið í almannatengslum og markaðsmálum. Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur. Markmiðið er að auka skilning á þeim leiðum sem best nýtast auk þess að fjalla um verkefni sem hafa náð framúrskarandi árangri hér á landi.
Námskeiðin eru 4,5 tímar og er boðið upp á tvær dagsetningar 5. nóvember ( laugardagur) kl. 10 - 15.30 og 8. nóvember ( þriðjudagur ) kl.10 - 15.30. Þáttökugjal er kr.9.900 og er léttur hádegisverður og gagnamappa innifalin í námskeiðsgjaldinu. Rétt er að benda á að hægt er að þeir félagsmenn Verk Vest sem hyggjast sækja námskeiðið eiga rétt á námsstyrk samkvæmt reglum viðkomandi fræðslusjóðs. Nánari upplýsingar um fræslusjóði Verk Vest má sjá hér. Hægt er að staðfesta þátttöku með því að fara á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og skrá sig þar.
Vefumsjón